Samrás ehf.

Samrás ehf. sérhæfir sig í sölu á mælitækjum af
öllum stærðum og gerðum. Samrás er einnig með umboð fyrir ETI og
Teltonika Networks á Íslandi og hefur þróað og framleitt hinn sívinsæla
hraðabreytimæli TruSpeed.

Um okkur

Samrás ehf. er verkfræðistofa stofnuð árið 1987 af Guðlaugi Jónassyni.
Fyrirtækið sérhæfir sig í ráðgjöf, hönnun mælikerfa, og innflutningi á
ýmsum mæli- og stýritækjum og kerfum.

Samrás ehf. vinnur einnig á
sviði grænnar endurnýjanlegrar orku. Fyrirtækið hefur hannað og
framleitt sólarknúin og vindrafalakerfi til að knýja mæli- og
eftirlitsbúnað sem ekki er tengdur við rafmagnsnet.